Sumarleyfið

Ég verð að viðurkenna að það er langt síðan ég hef bloggað. Ekki það að ég hafi ekki haft eitthvað að segja. Síður en svo. Ég hef alltaf nóg að segja.  Hef bara gert það annars staðar en hérSmile

En núna er ég að fara í ferðalag og ætla að vera lengi. Þess vegna ákvað ég að fara að blogga hér aftur til að vinir og vandamenn geti fylgst með ævintýrum mínum í útlöndum.  Ég er sem sagt að fara á morgun og ætla að vera eins lengi og ég kemst upp með. En ég lofa samt að ég verð komin aftur fyrir jól.  Þetta loforð er sérstaklega fyrir þau Óla og OlguHappy

Og ég lofa líka að vera (mátulega) stillt og fara ekki ein yfir til Marokkó og ekki leigja mér (of) stórt  mótorhjól og og og..... Halo

Þeir sem nenna svo bara að lesa alvarlega pistla verða að finna sér eitthvað annað til lestrar.  En hinir: Ég vona að þið njótið þess að lesa um sumar í útlöndum.  Mér finnst þið vera með mér í för þegar ég veit að þið eruð að lesa skrifin mín. 

Sumarkveðjur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Til hamingju með að skólinn skuli vera búinn og gleðilegt sumar!!!

Jóhann Elíasson, 24.5.2010 kl. 18:14

2 Smámynd: Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Takk:) Saknarðu þess ekki stundum að vera ekki að kenna?

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, 24.5.2010 kl. 18:41

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei, ekki get ég nú sagt það.  Ég er að fara í PRÓF á miðvikudaginn.

Jóhann Elíasson, 24.5.2010 kl. 19:24

4 identicon

Góða ferð!

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 25.5.2010 kl. 00:30

5 Smámynd: Hörður B Hjartarson

      Dagrún Steinunn !   Jól ?  Koma ekki jól eftir jól eftir - - - - ?  ;-)

Hörður B Hjartarson, 25.5.2010 kl. 02:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Höfundur

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
Er heppin kona með góða lífsreynslu sem gerir mig vonandi stöðugt að betri og betri manneskju. Er framhaldsskóla kennari og kenni stærðfræði. Hef ákveðnar skoðanir á (næstum) öllu og þörfin til að tjá þær hvetur mig til skrifta hér á þessu bloggi :)
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...p6130376
  • lítið líf

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 786

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband