Jólagjöfin í ár:)

Ég sat í makindum mínum og var að lesa fréttablaðið þegar ég rakst á auglýsingu frá Nýherja.

Þar var verið að auglýsa nýju Ideapad tölvuna (sem eflaust hefur einhverja kosti svona per se). Í auglýsingunni er spurt hvort sé betri jólagjöf og þar birtist mynd af tölvunni annars vegar og stórri kartöflu hins vegar og búið að merkja í box að tölvan sé greinilega betri kostur...

Mitt fyrsta svar var hins vegar að þessi kartafla væri veislumáltíð fyrir hungraðan einstakling. 

Svo þegar ég sá hvað tölvan kostaði kom næst: Vá hvað má kaupa margt annað nytsamlegt fyrir þurfandi fólk fyrir þennan pening.

Þessi auglýsing finnst mér mest sýna þá fyrringu sem enn virðist ríkja hjá mörgum. Að kaupa dýra hluti til að gefa í jólagjöf.  Gjöf sem þyggjandinn kann svo ekki að meta nema kannski í eina til tvær mínútur eða þangað til hann tekur utan af næstu gjöf.  Að eiga sem mest af veraldlegum hlutum sem sumir kalla gæði. Að geta borist sem mest á. Er ekki kominn tími til að hætta þessu? 

Jólin eiga ekki að vera tími ofgnótta. Þau eiga að vera tími kærleikans. Og kærleikurinn finnst ekki í nýrri tölvu hversu flott og fín hún nú annars er. 

Mig langar að benda á aðra leið í jólagjöfunum.   http://multikulti.web.is

 (Ég kann greinilega ekki að búa til tengil inn á síðu hér:/ )  Þessi slóð vísar á frábæra vefverslun.  Þessi vefverslun selur gjafabréf.  Þessi gjafabréf eru sérstök vegna þess að þau eru gjöf til þín þar sem í þínu nafni eru keyptir nytsamlegir hlutir öðru fólki til lífsbjargar. T.d. er hægt að kaupa geit á 3.300 krónur. Geitin sér síðan væntanlegum eiganda fyrir mjólk í framtíðinni.  Geiting gæti síðan eignast afkvæmi sem seinna eignast afkvæmi og getur þannig hjálpað fjölskyldu frá sárri neyð í að verða sjálfbær með mat og klæði. Ýmsa fleiri svona nytsama hluti er hægt að versla þarna.

Farið endilega þarna inn og skoðið. Þið finnið ekki margar svona frábærar jólagjafir:) 

Og þessar jólagjafir gleðja.  Til langs tíma:)  Ekki bara þann sem fær sendinguna (geit, maís eða hvað sem þú ákveður að kaupa) heldur þann sem þú gefur gjafabréfið og svo ekki síst þig af því að þú veist að þú ert að gera góða hluti. Og þá líður manni alltaf betur á sálinni. 

Þetta er það sem skiptir máli. 

Munið

http://multikulti.web.is

Megið þið svo njóta aðventunnar:)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þakka þér fyrir ábendinguna Dagrún.  Alveg er ég þér hjartanlega sammála, held reyndar að kartaflan sé betri jólagjöf sérstaklega ef það fylgja leiðbeiningar um hversu auðvelt er að tífalda hana næsta sumar.

Magnús Sigurðsson, 28.11.2009 kl. 23:25

2 Smámynd: Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Já segðu það Magnús. Svo er hægt að tífalda aftur og eftir fáein ár er jafnvel hægt að fara að selja frá sér hluta af uppskerunni eða skipta henni fyrir korn eða geit.  Við Íslendingar höfum það svo gott (þrátt fyrir kreppuvæl) að það gerði sálu okkar gott að kaupa þó ekki væri nema eitt gjafabréf fyrir jólin, bara fyrir sig.....

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, 29.11.2009 kl. 12:11

3 identicon

Innilega sammála - hikstaði líka á tölvuauglýsingunni ! þetta lið er ekki í lagi. Ég held ég hafi aldrei nokkurn tímann gefið jólagjöf sem kostar yfir 60 þús .... - samkvæmt kokkabókum þeirra sem hanna auglýsinguna er ég líklega bara svona nísk !

Sólveig Jónasdóttir (IP-tala skráð) 30.11.2009 kl. 09:35

4 Smámynd: Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Eða bara svo vel gefin að þú sérð í gegnum þetta

Vona bara að sá sem gefur einhverjum tölvu kaupi líka a.m.k. eina geit eða svo með........

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, 30.11.2009 kl. 17:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Höfundur

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
Er heppin kona með góða lífsreynslu sem gerir mig vonandi stöðugt að betri og betri manneskju. Er framhaldsskóla kennari og kenni stærðfræði. Hef ákveðnar skoðanir á (næstum) öllu og þörfin til að tjá þær hvetur mig til skrifta hér á þessu bloggi :)
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...p6130376
  • lítið líf

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband