Löglegt? Ekki víst. Ósanngjarnt? Jaháá!!

Kunningjakona mín ein sem er komin yfir sextugt, kom að máli við mig um daginn. Þessi kona er ósköp venjuleg íslensk kona. Fráskilin, með uppkomin börn, engin óregla, vinnusöm og búin að basla við það alla sína tíð að halda sér réttu megin við skuldalínuna.

Ástæða þess að hún hafði sérstaka þörf fyrir að tala við mig, var sú að hún hafði tekið erlent lán til að kaupa sér bíl (ekki einu sinni nýjan eða svo stóran......bara lítinn notaðan bíl) og hún vissi að ég hafði gert slíkt hið sama.

Svo kom fyrra fall krónunnar (í febrúar/mars 2008) en hún gat ströglað við að ná endum saman þó erfitt væri..... En svo kom hrunið og kreppan skall á af fullum þunga. Hún gat ekki lengur borgað af bílnum og hún gat heldur ekki lengur borgað (að fullu) af íbúðinni (bara lítil og pen íbúð fyrir eina konu) sem hún hafði keypt nokkrum árum áður á 90% lánum frá íbúðarlánasjóð (hluti lánanna var e.k. félagslegt lán eða hvað þau voru kölluð). Lánið á íbúðinni var komið langt yfir markaðsverð fasteignarinnar og sömu sögu var að segja um lánið á bílnum. 

Nú var fyrirtækið sem hafði gert við hana svokallaðan "leigusamning" um bílinn búið að rifta samningnum og taka bílinn (kallað oft bílasamningar.  Afsal bílsins er á nafni lánafyrirtækisins en umráðamaðurinn er sá sem "kaupir" bílinn, í þessu tilfelli kunningjakona mín).  Henni var hins vegar gert að greiða eftirstöðvar lánsins. 

Munum nú eftir þvi að þessi kona stendur ekki lengur undirafborgunum á íbúðinni vegna hækkunar á lánum.

Þannig að hún er í raun eignalaus.

 Hún bar sig því ekkert sérstaklega vel þegar hún var að tala um þetta við mig. Lánafyrirtækið vildi að hún bæri eftirstöðvarnar af láninu á bifreiðinni. Láni sem var með veði í bifreiðinni og engu öðru (ekki einu sinni öðrum ábyrgðarmanni). Láni sem talað var um sem "leigusamning" en ekki "kaupsamning" vegna bifreiðar. 

Sem sagt þegar búið var að draga matsverð bifreiðarinnar frá því sem hún var talin skulda stóðu eftirstöðvarnar allar á henni. Eignalausri konunni var gert að greiða upp lán sem var orðið einhverjum hundruðum þúsunda krónum  hærra en nam söluverði bifreiðarinnar þegar hún var keypt þrátt fyrir mánaðarlegar afborganir í rúmt ár. 

Lánafyrirtækið vildi breyta láninu í íslenska mynt og konan átti helst að borga 15.000 krónur á mánuði í 80 mánuði (næstum sjö ár).  Hún vissi að hún myndi ekki ráða við meira en 10.000 krónur á mánuði í mesta falli og var að reyna að semja um það við fyrirtækið þegar hún kom og talaði við mig.  Hún var sem sagt að reyna að semja um það að borga 10.000 krónur á mánuði í 10 ár af bíl sem hún hafði haft að láni í eitt ár. Borga af bílnum eftir að hún væri komin á ellilífeyrinn. Allt til að reyna að koma í veg fyrir að hún yrði lýst gjaldþrota. 

Persónulega finnst mér þetta vera vita ósanngjarnt af fyrirtækinu. Fyrir það fyrsta; hver græðir ef krónan styrkist?  a) Fyrirtækið eða b) konan?  Hver græðir svo ef konan verður gjaldþrota?  a) Fyrirtækið?  b) konan?  Í hvorugu tilfellinu græðir konan. Í seinna tilfellinu græðir hvorugur aðilanna.

En óháð öllu því sem er ósanngjarnt eða sanngjarnt þá hlýtur líka að vakna spurningin um lögmæti. Getur fjármálafyrirtæki á löglegan hátt gengið að fólki á þennan hátt? Langt fram yfir verðmæti þess hlutar (íbúðar eða bíls) sem liggur að veði fyrir láninu? 

Í íslenskum lagabálkum má finna ýmis lög og reglugerðir sem bankar og lánafyrirtæki vísa óspart í kröfum sínum til stuðnings, en fáir virðast taka upp hanskann fyrir skuldarann. Ég ætla að benda á að samningalög sem gilda hér á Íslandi benda á það í 36. grein að ólöglegt er að halda frammi ákvæðum í samningum sem augljóslega eru ósanngjörn.  

Svona sögur gera mig fyrst og fremst reiða. Ég vona innilega að núverandi stjórnvöld (þó þau stoppi í stuttan tíma) breyti lögum þannig að algerlega ólöglegt er að ganga á eignir umfram veðkröfu. Samningar verða að vera sanngjarnir á báða vegu. Þar fyrir utan sé ég ekki alveg að bankarnir eða fjármálafyrirtæki í landinu ætli sér að borga af sínum skuldum umfram veðsetningar. Eigum við þá að gera það?  Er það afþví við erum ósátt við að þurfa að standa undir stórfelldum aukningum á skuldum sem við getum beint kennt þessum fyrirtækjum um að við erum síðan kölluð "skríll"??


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hafði endilega samband við einhvern í ríkisstjórninni eða þingmann ríkistjórnarflokks. Svo tel ég að þú og hún eigið að hafa samband við Hagsmunasamtök heimilanna sem stofnuð voru nú eftir áramótin. www.heimilin.is Talsmaður Neytenda er líka til og heitir Gísli Tryggvason.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 8.2.2009 kl. 14:54

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Netfang hjá talsmanni Neytenda  http://www.neytandi.is/ 

Hólmfríður Bjarnadóttir, 8.2.2009 kl. 15:00

3 Smámynd: Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Takk fyrir þetta Hólmfríður. Ég ætla að benda kunningjakonu minni á það.  Auðvitað er þetta ekki eina svona málið þessa dagana. En það eru einmitt svona mál sem á að taka og kryfja. En þessi saga sýnir hins vegar offorsið sem er hjá fjármálafyrirtækjum við innheimtu þessa dagana. Það virðist vera lítið um miskunn eða tillitssemi.

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, 8.2.2009 kl. 17:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Höfundur

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
Er heppin kona með góða lífsreynslu sem gerir mig vonandi stöðugt að betri og betri manneskju. Er framhaldsskóla kennari og kenni stærðfræði. Hef ákveðnar skoðanir á (næstum) öllu og þörfin til að tjá þær hvetur mig til skrifta hér á þessu bloggi :)
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...p6130376
  • lítið líf

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband