Bongóblíða

Hér er búin að vera bongóblíða frá því að ég kom. Þvílikt notarlegt að vera í rúmlega 20 stiga hita og sól..  Dagarnir fara í notarlega göngutúra og afslappelsi.  Í gær var okkur þó boðið í Gautaborgarhjólið sem er útgáfa af London´s eye, bara minna.

Vinur Tommy´s  er kvikmyndagerðarmaður og hann er að gera kynningarmynd fyrir Gautaborg.  Svo nú er ég orðin kvikmyndastjarna.  Kem til með að birtast í yfir 1000 sjónvarpsstöðum víða um heim þar sem ég sýni frábæra leikarahæfileika sem túristi í Gautaborg (þ.e. í hjólinu þeirra).   Reyndar hjálpaði það til að útsýnið var gríðarfallegt en það sem vakti mestu athyglina var samt að einhver snillingur var búinn að koma fyrir þessum glæsilega tennisvelli upp á þaki hjá sér.   Hver skildi svo þurfa að sækja boltann þegar hann fer út af vellinum??

Annað sem vekur athygli mína er hvað það er mikið um hjólamenn hér í Svíþjóð. Já menn. Hef séð fullt af mönnum (eiginlega kannski svona frekar köllum......) á hjólum hér. Þeir eru talsvert hrifnir af HD.  En ég hef samt náð að sjá gríðarfallegan Dukati og eitt BMV.  

Það virðist ekki vera nein sérstök krafa um hlífðarfatnað önnur en sú að hlífðarfatnaður skal notaður og allir eiga að vera með hjálm.  Nánari skilgreining á hlífðarfatnaði virðist vera á reiki þar sem margir eru bara á gallabuxunum.  Ég sá meira að segja einn gamlingjann á fína  Yahama Dragstar hjólinu sínu.  Hann var á gallabuxum og lakkskóm......

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Höfundur

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
Er heppin kona með góða lífsreynslu sem gerir mig vonandi stöðugt að betri og betri manneskju. Er framhaldsskóla kennari og kenni stærðfræði. Hef ákveðnar skoðanir á (næstum) öllu og þörfin til að tjá þær hvetur mig til skrifta hér á þessu bloggi :)
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...p6130376
  • lítið líf

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband